Kötturinn í sekknum er hlaðvarp Neytendasamtakanna. Eins og við er að búast er áherslan á neytendamál og þar er svo sannarlega af nógu að taka. Við vonum að hlustendur verði alltaf einhvers vísari eftir hvern þátt. Heitið á þáttunum er tilvísun í gamalt slagorð Neytendasamtakanna „Kauptu ekki köttinn í sekknum!“ Það er óhætt að segja að orðtækið eigi ekki síður við í dag.
Latest episodes
-
37 min
Kaup á nýjum bíl – gallar og ábyrgð
Þegar neytendur kaupa nýjan bíl vænta þeir þess að bíllinn sé í fullkomnu lagi. Það geta þó komið upp gallar í nýjum bílum. Við förum yfir úrræði neytenda þegar svo ber undir, ábyr…
-
25 min
Þáttur 2: Ofneysla og kaupfíkn
Mikið aðgengi að ódýrum tískuvörum, netsölurisar, hulduhönnun, fómó og stóraukin notkun samfélagsmiðla er ávísun á ofneyslu. Helga Soffía Sigurðardóttir félagssálfræðingur hefur ra…
-
42 min
Þáttur 1: Bragð er að þá barnið finnur
Tilbúinn barnamatur, sem ætlaður er ungabörnum, er oft á tíðum næringarsnauður og allt of sætur. Brynhildur ræðir málin við Birnu Þórisdóttur og Jóhönnu Eyrúnu Torfadóttur.