Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu
by Margrét Gunnarsdóttir
🇮🇸 Iceland chart SocietyCulturePlaces
Ferðalög til Ítalíu og ferðatilboð þangað hafa aukist verulega á undanförnum árum. Hlaðvarpið ”Ítalía heillar” er tileinkað þér sem hefur nú þegar ferðast um landið eða hefur Ítalíu á óskalistanum.Ég heiti Magga — ég er menntaður tónmenntakennari og upplýsingafræðingur. Í hlaðvarpinu ætla ég að deila fróðleiksmolum fyrir ferðalanga um Ítalíu, Ítali, ítalska menningu, borgir og bæi, eyjar, héruð, fegurðina, sérviskuna og ótalmargt fleira en líka litlu augnablikunum sem sjaldnar eru dregin fram.Ítalía hefur verið hluti af lífi mínu í áratugi. Ég bjó þar fyrst sem skiptinemi, eignaðist fjölskyldu og vini fyrir lífstíð og leiðin hefur legið aftur og aftur til þessa fallega lands. Meðfram starfi mínu sem upplýsingafræðingur, varði ég mörgum sumarleyfum sem fararstjóri íslenskra ferðahópa á Ítalíu, þar sem nánast hver vegur, hvert stræti leiðir mann að einhverju ógleymanlegu.Heimildir fyrir ef…
Latest episodes
-
43 min
8. Róm III - Skemmtileg torg, götur, söfn og frægir staðir í Róm. Hvernig forðastu langar biðraðir?
Í þessum þriðja og síðasta þætti um Róm, beinum við sjónum að borginni sjálfri – frægustu stöðunum, torgunum, götunum, mörkuðunum og matarmenningunni. Við heimsækjum meðal annars C…
-
38 min
7. Róm II - “Ekkert stress”– samgöngur, hverfi og góð ráð
Í þessum öðrum þætti um Róm færðu hagnýt ráð sem geta gert Rómarferðina einfaldari, öruggari og ánægjulegri. Þú færð að heyra um leiðir til að komast frá Fiumicino-flugvelli inn í…
-
41 min
7. Róm II - “Ekkert stress”– samgöngur, hverfi og vasaþjófatrikk
Í þessum öðrum þætti um Róm færðu hagnýt ráð sem geta gert Rómarferðina einfaldari, öruggari og ánægjulegri. Þú færð að heyra um leiðir til að komast frá Fiumicino-flugvelli inn í…
-
17 min
6. Róm I - Marglaga, mótsagnakennd og lifandi borg
Í þessum fyrsta þætti af þremur um Róm er farið í svolítið óhefðbundið ferðalag um sögu borgarinnar, allt frá goðsögninni um Rómúlus og Remus til Rómar nútímans. Frá því að vera up…
-
20 min
5. Hvað er til ráða ef þú veikist á Ítalíu?
Í þessum þætti er farið yfir hvernig þú getur fengið aðstoð á Ítalíu, hvort sem um er að ræða væga kvilla eða neyðrartilvik.Fyrir brottför ættir þú að sækja um Evrópska sjúkratrygg…
-
49 min
4. Lago di Garda – Gardavatnið og töfrar þess sem heilla ferðalanga
Lago di Garda – Lake Garda – GardavatniðGardavatn (Lago di Garda), stærsta vatn Ítalíu. Lýst er einstakri fegurð vatnsins, þar sem snævi þaktir Alpatoppar mæta pálmatrjám, ólífutrj…
-
29 min
3. Ítalía III – Þekkirðu götubrellur vasaþjófanna?
Hér færðu að kynnast helstu mistökum sem ferðamenn gera á Ítalíu og hvernig þú getur forðast þau til að njóta ferðarinnar betur.Nokkrar óvæntar reglur geta komið þér á óvart. Til d…
-
25 min
2. Ítalía II - Væntingar og veruleiki. Af hverju heillast ferðalangar af Ítalíu?
Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um ÍtalíuÍ þessum þætti er farið yfir það sem gott er fyrir þig að vita áður en lagt er af stað til Ítalíu. Fjallað er um muninn á væntin…
-
2 min
TRAILER - Ítalía heillar
Kynning á hlaðvarpinu Ítalía heillar.Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingurVefsíða: www.italiaheillar.is
-
26 min
1. Ítalía I - Ertu að skipuleggja ferð til Ítalíu?
Ítalía heillar – hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu.Í þessum fyrsta þætti Ítalía heillar segir Magga frá því hvernig áhugi hennar á Ítalíu kviknaði þegar hún fór sautján ára gömul…