podcasts.eu.org

Gull og grænir skógar

by RÚV Hlaðvörp · 24 episodes

🇮🇸 Iceland chart ScienceNatureLeisure

Website ↗ More by author

Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.Í þáttunum úr smiðju Rásar 1 er fræjum sáð og fróðleik um hverskyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði - og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Latest episodes

  1. Miklabraut, Hlíðar og Holt: Einkenni, gróður og brautryðjendur

    Í þættinum er dvalið við Miklubraut og Hringbraut þar sem linditré og hin sögufræga Hringbrautarrós koma við sögu. Staldrað er við Klambratún og Skaftahlíð þar sem fyrsti landslags…

    54 min
  2. Hellisgerði: Gróður og saga

    Ráfað er um Hellisgerði í fylgd góðra gesta. Rætt er um serbíugreni, beyki, hrossakastaníu, deigli og fleira. Rýnt er í ræktunarsögu þessa gamla garðs og hlutverks hans sem skemmti…

    52 min
  3. Gróður og yfirnáttúran í náttúrunni í Hafnarfirði.

    Í þættinum er ráfað í kringum Hamarinn í Hafnarfirði og staldrað sérstaklega við Brekkugötu og Austurgötu. Rætt er um yfirnáttúru og þær umgengnisreglur og bannhelgi sem hvílir á v…

    50 min
  4. Göngutúrar langir og stuttir

    Í þættinum er fjallað sérstaklega um göngutúra, rölt og labb. Göngutúrar eru skoðaðir sem ferðamáti og lífsstíll – en líka sem hversdagslegt fyrirbæri. Rætt er um áhrif labbs á umh…

    49 min
  5. Litur í lífið: Haustlaukar, haustlitir og garðhúsið

    Í þættinum er fjallað um úrval litríkra haustlauka og gróðursetningu þeirra sem fer fram í september og október og jafnvel lengur. Rætt er um mismunandi tegundir haustlauka og eigi…

    51 min
  6. Tákn rósarinnar: Rósir og sérstaða rósaættarinnar

    Í þættinum er fjallað um táknheim rósarinnar meðal annars út frá sögunni, hversdagsmenningu og pólitík. Rifjaðir eru upp atburðir úr fortíðinni þar sem rósir leika stórt hlutverk e…

    50 min
  7. Rósarækt og hinn harðgerustu yrki fyrir íslenskar aðstæður

    Í þættinum er fjallað um þá tegund blóma sem hefur heillað okkur mannfólkið hvað mest og lengst – rósir. Rætt er um táknfræðilegt hlutverk þeirra en þó allra mest um rósarækt á Ísl…

    52 min
  8. Ísland á tertíer og ísöld: Gróðurvendingar og nýtt upphaf íslensku flórunnar.

    Í þættinum er fjallað um gróður á Íslandi á öldunum fyrir ísöld þegar loftlag var hlýrra eða á hinu svokallaða tertíer-tímabili jarðsögunnar. Ýmsar minjar frá þeim tíma sýna að hér…

    47 min
  9. Vesturbæjarvíðir, Schierbeck–reynirinn og garðfuglagróður.

    Í lokaþætti þáttaraðarinnar er fjallað um sögufræg tré en einnig gróður sem garðfuglar geta notið góðs af. Rætt er sérstaklega um hlíðaramal í samhengi við fuglafóðrun en runninn h…

    54 min
  10. Garðurinn, skipulag og limgerðin stór og smá

    Í þættinum er fjallað um hlutverk og skipulag limgerða. Limgerði hafa lengi verið nýtt til að skipta upp landi, stýra umferð, fela svæði og prýða. Rætt er um limgerði í sögulegu sa…

    55 min
  11. Gróður gerir meira en að þekja: Ilmur, angan, lykt, áferð og skógarbað

    Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

    56 min
  12. Garðagróður frá Kína: Fjölbreyttar kínverskar plöntur, fræsöfnun Joseph Rock og framtíðarhljómur

    Í þættinum er haldið í ferðalag til Kína út frá vel þekktum garðagróðri á Íslandi. Kastljósinu er beint sérstaklega að fjölæringum, gulbambus, reynitegundum og runnum frá Kína. Fja…

    55 min
  13. Skjól og ætur garðagróður

    Í þættinum er fjallað um um skjól, skjólbelti og skjólveggi – en einnig um fjölbreyttar tegundir garðagróðurs sem má leggja sér til munns. Gefin eru ráð varðandi skjólbeltagerð og…

    54 min
  14. Jarðsögulegt samhengi plantna: súrefnisbyltingin, viðarvöxtur, blómgun og sveppir

    Í ellefta þætti af Gulli og grænum skógum er fjallað um tilkomu planta og þróun þeirra í jarðsögulegu samhengi. Fjallað er um ýmis einkenni sem plöntur hafa þróað með sér allt frá…

    55 min
  15. Lyngrósir og brautryðjendastarf Óla í Nátthaga í kjölfar fræsöfnunarleiðangursins 1985

    Í maímánuði er tilvalið að staldra við krúnudjásnið í garðinum, lyngrósir eða rhododendron. Rætt er við Ólaf Sturlu Njálsson eða Óla í Nátthaga um lyngrósir sem hann hefur ræktað f…

    54 min
  16. Stofuplöntur: umhirða, tengsl og sögulegt samhengi

    Í þessum níunda þætti Gulls og grænna skóga er rætt um stofuplöntur sem stofustáss, ástríðu, minjagripi, nytjaplöntur og fleira. Rætt er um umhirðu stofuplanta s.s. áburðargjöf og…

    52 min
  17. Garðyrkjuskólinn, Bananahúsið og gróður sem gjafir

    Í þessum áttunda þætti Gulls og grænna skóga er rætt um Garðyrkjuskólann Reykjum, mikilvægi námsins og þær fágætu tegundir sem þar má finna – sérstaklega í Bananahúsinu. Rætt er vi…

    52 min
  18. Gróður frá suðurhveli jarðar, stofugreni og vendingar á Nýja–Sjálandi.

    Í þættinum er ferðast um suðurhöf í gegnum íslenskan garðagróður sem á heimkynni sín á suðurhveli jarðar – í Argentínu, Síle, Ástralíu og Nýja–Sjálandi. Sérstaklega er fjallað um a…

    54 min
  19. Páskahretið 9. apríl 1963 og önnur nýlegri áföll

    Í þættinum er leitast við að kafa ofan í afleiðingar páskahretsins mikla 9. apríl 1963 sem markar viss kaflaskil í gróðursögu landsins. Í kjölfarið er rætt um nýlegri áföll, eins o…

    52 min
  20. Fjölæringar

    Í þættinum er rætt um fjölæringa sem gefið hafa góða raun. Dalaliljan (liljur vallarins) og þistill eru skoðuð sérstaklega út frá táknrænu og kristnu samhengi. Rætt er um fjölæring…

    55 min
Nothing playing
0:00 / 0:00