podcasts.eu.org

í flæði

by Auja og Birta · 8 episodes

🇮🇸 Iceland chart ArtsBooks

Website ↗ More by author

Í flæði ræða systurnar Auja og Birta um sköpunarkraftinn, andleg mál, myndlist, ritlist, bækur og allt það sem því tengist. Báðar eru þær sjálfstætt starfandi í listinni, Auja er rit -og myndhöfundur en Birta er rithöfundur og þýðandi og rekur Skriðu bókaútgáfu og prentverkstæði. Þá fá þær einnig til sín góða gesti til þess að ræða uppsprettu sköpunarinnar, andlegu málin og innblásturinn.

Latest episodes

  1. Upprifjun, bókaspjall og rabb.

    Fyrsti þáttur eftir hlé. Birta og Auja rifja upp hvað þær hafa verið að sýsla við síðan síðast. Ræða bækur, draga spil og spjalla um það sem er framundan.

    1 h 04
  2. Þráðurinn tekinn upp að nýju

    Í þættinum taka systurnar Auja og Birta upp þráðinn þar sem frá var horfið síðan síðast. Þær segja frá breyttum venjum eftir að þær hættu snjallsímanotkun, ræða bækur sem þær hafa…

    57 min
  3. Annar þáttur frá Argyroupoli og viðtal við Dimitris

    Annar þáttur sendur út frá fjallaþorpinu Argyroupoli á Krít. Auja og Birta ræða við kaffihúsaeigandann Dimitris, sem er fæddur í þorpinu og rekur þar æðislegt kaffihús. Einnig ræða…

    37 min
  4. Fyrsti þáttur frá Argyroupoli

    Þátturinn er sendur út frá litla fjallaþorpinu Argyroupoli á Krít. Í þættinum ræða Auja og Birta um þorpslífið, bækur sem þær hafa verið að lesa, segja frá húslestrinum og Auja les…

    39 min
  5. Rabb um álfa og huldufólk

    Hér rabba Auja og Birta um álfatrúna sem virðist lifa góðu lífi, Birta les álfasögu og þær velta fyrir sér uppruna huldufólks.

    43 min
  6. Vísbendingar

    Í þættinum ræða Auja og Birta um vísbendingar og það að fylgja vísbendingum. Þær ræða líka um bækur sem þær hafa verið að lesa nýlega og segja frá verkefnum í Skriðu og Birta les u…

    53 min
  7. Móheiður Hlíf í Kanínuholunni

    Gestur þáttarins og jafnframt fyrsti gestur hlaðvarpsins er Móheiður Hlíf Geirlaugsdótttir, skáld, þýðandi og bóksali í Kanínuholunni. Við ræðum við hana um bókaveröldina Kanínuhol…

    52 min
  8. Draumar

    Auju dreymir mikinn rottugang og Birta reynir að ráða í það. Þær ræða síðan um drauma, draumskyggni og hvernig draumar geta veitt innblástur í listinni og Birta les upp örsögu bygg…

    32 min
  9. Barnabækur og áhrif bóka á ímyndunaraflið

    Í þættinum ræða Auja og Birta um barnabækur sem höfðu áhrif á þær í æsku og mikilvægi þess að gefa sér stund til lesturs en einnig hvernig bækur geta haft áhrif á ímyndaraflið. Tæk…

    33 min
  10. Flæði

    Í þættinum ræða systurnar Auja og Birta um hvað það er að vera í flæði, hvernig er hægt að komast í flæði og virkja þannig sköpunarkraftinn. Auja segir frá barnabók sem kom til hen…

    33 min
Nothing playing
0:00 / 0:00