podcasts.eu.org

Skáld og skrælingjar

by RÚV Hlaðvörp · 10 episodes

🇮🇸 Iceland chart HistoryArtsBooks

Website ↗ More by author

10 þátta röð fyrir Rás 1 í umsjón Þorgerðar E. Sigurðardóttur og Halldórs Guðmundssonar.Ísland og Kaupmannahöfn í spegli bókmenntanna: Í þáttunum verða þessi aldalöngu tengsl skoðuð frá mörgum sjónarhornum. Kaupmannahöfn var í næstum 500 ár eins konar höfuðborg Íslands, aðsetur stjórnsýslunnar, æðsta dómstólsins og konungsins. Sumir Íslendingar hröktust þangað eða voru fluttir til borgarinnar nauðugir, aðrir leituðu þar frelsis og réttinda sem þeir nutu ekki heima. Hvernig kom borgin þeim fyrir sjónir, hvernig breytti hún viðhorfum þeirra eða umturnaði lífshlaupinu? Óvíða sést...

Latest episodes

  1. 10. þáttur - Bækurnar og borgin

    Hvernig hefur íslenskum samtímabókmenntum vegnað í Kaupmannahöfn? Hefur borgin ennþá þýðingu fyrir nýja höfunda hérlendis og hver er mynd hennar?Rætt við Einar Má Guðmundsson og An…

    43 min
  2. 9. þáttur - Borgir og bókmenntir

    Hvað gerðist í bókmenntum þegar borgir urðu til? Af hverju geta bókmenntir frá Aþenu hinni fornu virkað eins og samtímabókmenntir á lesendur löngu síðar? Og hvaða hlutverki gegndi…

    45 min
  3. 8. þáttur - Hippar, hommar og lesbíur í Höfn

    Á 20. öldinni komu kynferðispólitískir flóttamenn frá Íslandi til Kaupmannahafnar, í borginni var hægt að haga lífi sínu eins og hver og einn kaus. En þangað kom líka fólk sem lét…

    46 min
  4. 7. þáttur - Íslensk skáld í Kaupmannahöfn

    Í byrjun 20. aldar létu margir íslenskir sveitapiltar sig dreyma um að verða skáld og skrifa fyrir heiminn. Og nokkrir þeirra fluttu til Danmerkur og urðu höfundar á dönsku. Sumur…

    46 min
  5. 6. þáttur - Þjóðskáldin í Kaupmannahöfn

    19. öldin er öld ljóðlistar í íslenskum bókmenntum. Og mörg bestu ljóðin, þar með talin sum þekktustu ættjarðarljóðin, voru ort í Kaupmannahöfn. Það þurfti fjarlægð borgarinnar til…

    46 min
  6. 5. þáttur - Fangar í Kaupmannahöfn

    Á 18. öld er fimmtungur þjóðarinnar á flakki og margur þarf að stela sér til matar. Á sama tíma breyttist refsikerfið í þá átt að í stað lífláts voru sakamenn látnir þræla ævilangt…

    47 min
  7. 4. þáttur - Eyjarskeggjar koma til borgarinnar

    Fyrstu Íslendingarnir sem skrifa ferðasögur eiga allir leið um Kaupmannahöfn. Hvernig varð þeim við að koma frá þessari afskekktu eyju í aldagamla borg? Hvernig mótaði hún sjálfsmy…

    45 min
  8. 3. þáttur - Danir og hin gullna fortíð

    Hér segir frá því er Danir vildu leita í rætur menningar sinnar í íslenskum fornbókmenntum og konungar gerðu út menn að safna handritum. Hvaða viðhorf lágu þar að baki, hvernig bru…

    47 min
  9. 2. þáttur - Konurnar í Kaupmannahöfn

    Þátturinn fjallar um konur sem fóru til Kaupmannahafnar forðum, til að leita ásjár eða frelsis eða af því þeim nauðugur sá kostur. Vitnað er til ævisagna og heyra má áhrifamiklar ö…

    43 min
  10. 1. þáttur - Skrælingjar í Kaupmannahöfn

    Hér er einkum sagt frá Íslendingum sem komu til náms í Kaupmannahöfn, einkennilegum siðum sem tíðkuðust í félagsskap þeirra og viðbrögðum, þegar til stóð að halda svokallaða nýlend…

    47 min
Nothing playing
0:00 / 0:00