Leðurblökur eru skuggaleg og skringileg dýr sem hafast við í dimmum hellum og skúmaskotum. Þær eru sjaldséðar hér á landi en slæðast þó hingað af og til. Í Leðurblökunni er fjallað um ýmsar ráðgátur og sakamál, og önnur dularfull og sérkennileg mál úr sögunni. Þættirnir voru áður á dagskrá Rásar 1 árið 2014. Umsjónarmaður: Vera Illugadóttir
Latest episodes
-
2 h 41
22. Blýgrímurnar
Í ágúst árið 1966 fundust lík tveggja rafmagnsverkfræðinga í rjóðri efst á hæð nokkurri í grennd við Ríó de Janeiro í Brasilíu. Mennirnir voru báðir klæddir í snyrtileg jakkaföt og…
-
2 h 16
21. Axarmorðin í Villisca
Leðurblakan fjallar um dularfullt morðmál í smábæ í Iowa í Bandaríkjunum árið 1912. Sumarnótt eina braust einhver inn á heimili Moore-fjölskyldunnar í bænum Villisca, og myrti allt…
-
1 h 22
20. Réttlátu dómararnir
Leðurblakan fjallar um einn alræmdasta óleysta glæp í sögu Belgíu, og jafnframt í listasögunni. Árið 1934 var einni plötu úr altaristöflu Jan Van Eycks í dómkirkjunni í Gent í Belg…
-
54 min
19. Börnin sem fuðruðu upp
Á aðfaranótt jóladags 1945 brann hús fjölskyldu nokkurrar í smábæ í Vestur-Virginíu til grunna. Sodder-hjónin og þrjú börn sluppu út við illan leik, en hin börnin þeirra fimm hurfu…
-
26 min
18. Vitaverðirnir á Flannan eyjum
Flannan-eyjur eru örlítill eyjaklasi sem tilheyrir Ytri-Suðureyjum í Skotlandi - varla meira en sker og hólmar sem rísa upp úr Norður-Atlantshafi. Þar eru engir mannabústaðir og en…
-
28 min
17. Týnda borgin í Amazon
Árið 1925 lagði breski landkönnuðurinn Percy Fawcett af stað inn í Amazon-regnskóginn í Brasilíu í leit að rústum höfuðborgar horfinnar siðmenningar, sem hann kallaði týndu borgina…
-
28 min
16. Líkið í álminum
Vorkvöld eitt árið 1943 voru nokkrir táningspiltar á flækingi um skóg í nágrenni borgarinnar Birmingham í Bretlandi, í leit að fugslhreiðrum. En í stað hreiðra fundu þeir beinagrin…
-
27 min
15. Dauðsfallið á Suðurskautslandinu
Það er varla nokkur staður á jörðinni afskekktari og einangraðri en Amundsen-Scott-rannsóknarstöðin á Suðurskautslandinu. Yfir heimskautaveturinn er þar stöðugt myrkur, stöðugt hva…
-
29 min
14. Aleppó handritið
Eitt dýrmætasta fornhandrit Gyðingdómsins, sem talið er vera eitt fullkomnasta eintak af hebresku biblíunni sem til er, Aleppó-handritið, er geymt við stranga öryggisgæslu í neðanj…
-
28 min
13. Eitraða konan
Kvöld eitt árið 1994 veiktust tugir starfsmanna á bráðamóttöku sjúkrahúss í Kaliforníu, fengu heiftarleg flog og misstu meðvitund í hrönnum. Veikindi þeirra virtust tengjast komu u…
-
27 min
12. Morðið við refaturninn
Á köldum vetrarmorgni í janúar 1937 fannst illa útleikið lík ungrar, evrópskrar stúlku í útjaðri gömlu Peking. Rannsókn lögreglu á dauða hennar bar lítinn árangur, enda voru flesti…
-
27 min
11. Konan í Ísdalnum
Á fallegum vetrardegi 1970 rakst maður á göngu um Ísdalinn í nágrenni Bergen á illa brunnið lík konu í fjallshlíðinni. Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að mánuðina fyrir andl…
-
54 min
10. Skrímslið með 21 andlit
Leðurblakan fjallar um eitt furðulegasta sakamál í sögu Japans. Í sautján mánuði, árin 1984 og 1985, hélt dularfullur óvættur sem kallaði sig Skrímslin með 21 andlit japönsku samfé…
-
27 min
9. Morðin í Hinterkaifeck
Í byrjun þriðja áratugarins, á miklum ólgutímum í Þýskalandi, fundust lík sex manna fjölskyldu á litlum bóndabæ þeirra í Bæjaralandi. Öll höfðu þau verið myrt, og það sem vakti hva…
-
27 min
8. Hvarf Michaels Rockefellers
Árið 1961 hvarf ungur Bandaríkjamaður sportlaust langt inni í regnskógi Nýju Gíneu, á yfirráðasvæði herskárrar frumbyggjaþjóðar sem fáir Vesturlandabúar höfðu heimsótt áður. Ungi m…
-
29 min
7. Morðin við Bodom-vatn
Leðurblakan fjallar um eitt óhugnanlegasta morðmál í sögu Finnlands, sem aldrei hefur verið leyst þrátt fyrir áralanga rannsókn. Ókunnur maður réðst þá á fjóra unglinga sem sváfu í…
-
28 min
6. þáttur - Bókaþjófurinn í Stokkhólmi
Árið 2003 komst upp um ótrúlegan bókaþjófnað frá Konunglega-bókasafninu í Stokkhólmi. En atburðarásinni var ekki lokið þar, því fyrst átti eftir að verða dauðsfall.
-
25 min
5. þáttur - Draugaskipið Mary Celeste
Í þessum þætti Leðurblökunnar siglum við með mannlausa draugaskipinu Mary Celeste frá New York að Ítalíu
-
27 min
4. þáttur - Líkið á ströndinni
Leðurblakan flýgur að ströndu Ástralíu en þar fannst lík. Við sögu kemur persnesk ljóðabók og ferðataska í hólfi á lestarstöð.
-
27 min
3. þáttur - Leyndarmál Glamis-kastala
Leðurblakan í dag flýgur um dimma ganga Glamis-kastala í Skotlandi en margir trúa að kastalinn búi yfir hræðilegum leyndardómum